23.03.2006 18:41:12 / Barbara
Já við erum alveg arfa slakir bloggarar og það mun ekki breytast
neitt á næstunni.
Síðasti skóladagurinn var í dag sem þýðir auðvita bara eitt, prófin
eru rétt handan við hornið. Þetta verður rosaleg törn enda ekkert
smá mikið lesefni, allavega meira en á síðustu önn. Já við verðum
heldur betur að bretta uppá ermarnar og sökkva okkur ofaní
bækurnar. Nóg um skólann!!!!!!
Ég er búin að taka þessa leiðinlegu skoðanakönnun út og ætla mér
ekki að birta útkomuna en get sagt ykkur að þetta er mynd af Janis
Joplin og ástæðan fyrir því að myndin kom ekki öll er sú að ég kann
ekkert á þetta drasl og nenni ekki að reyna að læra hvernig á að
setja mynd þarna þannig að hún passi. Hverjum datt eiginlega í hug
að vera hafa allt þetta svona flókið, þetta er alls ekki ég og mín
vöntun á tæknikunnáttu. Ég mun allavega aldrei viðurkenna
það.......... Til hvers þarf maður eiginlega að kunna á meira en
wordið og netið????? Já ég bara spyr????
Jæja ég held að ég sé búin að láta gammin geysa nóg í bili og kveð
að sinni og vil óska öllum þeim sem eru á leiðinni í prófalestur
góðsgengis og votta ykkur alla mína samúð.. ég vorkenni allavega
mér sjálfri

.......
Bless bless
»
19.03.2006 16:20:46 / Barbara
Halló halló... það var svaka stuð í vísindaferðinni, mikið drukkið
og talað. Ég var samt án efa sú slakasta af okkur þrem og var farin
heim um svona 2:30, Sús og Kleó djömmuðu fram eftir öllu og voru að
skríða heim til sín í morgun....
Ég er búin að setja inn myndir, tók miklu fleiri en vegna
ritskoðunar þá ákvað ég að vera ekkert að setja allar inn....
endilega skoðið þær..
Nenni ekki að segja mikið meira núna.... kem með skemmtilegri
færslu seinna....
Bless í bili..
»
17.03.2006 10:09:48 / Barbara
Við Þema systur ætlum í okkar fyrstu vísindaferð, frá því skólinn
byrjaði, í dag. Hversu slappt er það??? Búnar að vera tvær annir í
skólanum án þess að láta sjá okkur í þessum alræmdu ferðum sem
snúast útá það að drekka bjór í þágu vísindanna... Það verða alveg
drukknir nokkrir bjórar í þessari ferð, við þurfum nefnilega að
bæta upp fyrur öll þau skipti sem við fórum ekki. Já við verðum
örugglega ansi skrautlegar í kvöld, það má líka benda á það að
þetta er síðasta djammið fyrir prófin sem byrja í byrjun apríl,
þannig að það verður svaka stuð í kvöld....
Það er ekki nema ein vika eftir af skólanum sem þýðir það að prófin
eru bara handan við hornið.. Þetta er eiginlega búið að liða of
hratt, maður er varla byrjaðu og þá er skólinn bara senn á enda.
Það verður sko aldeilis tekið sá á og lært dag sem nótt... við
stefnum auðvita á það að dúxa þessa önnina (yeah, sé það
gerast).....
Jæja ég neni ekki að segja meira í bili, en mun henda inn myndunum
sem ég mun koma til með að taka sem fyrst....
Bless í bili kæru félagar
»
12.03.2006 17:40:27 / Barbara
Já það er aldeilis hvað maður er búinn að vera óduglegur við að
sinna þessari blessuðu síðu en vonandi að það fari að breytast.
Það er nú ekki margt sem hefur gerst núna undanfarna daga, eintóm
verkefna vinna og leiðindi. Ég ætla ekki að segja ykkur frá því
vegna þess að ég er hrædd um að flestir myndu deyja úr leiðindum.
Ástæðan fyrir því að ég er að gera færslu er sú að ég var að setja
inn nýjar myndir úr afmælinu mínu, þetta eru svona misskemmtilegar
myndir en ég hafði ekki úr miklu að velja því myndavélin gleymdist
heima. Endilega tékkið á þeim ef þið viljið sjá skvísur, ef þið
sjáið einhverja sem ykkur lýst á þá getið þið náð í mig í síma
908-pimp...+
Bless í bili
»
07.03.2006 21:19:13 / þema
Jæja, góðir hálsar, þá er maður kominn á klakann aftur. Eða réttara
væri að segja, ja eitthvað annað en klakann um þetta blessaða land,
því hérna er hitabeltisloftslag miðað við Danmörku. Þarna snjóaði
og snjóaði alla daga, og það var þvílíkt kalt, svo maður þurfti að
treysta á síðu ullarbrækurnar í þessu ferðalagi. Annars stóð Köben
fyrir sínu og við vorum duglegir túristar, löbbuðum endalaust
mikið, Strikið fram og tilbaka oft á dag, og fórum í dýragarðinn og
varð ég fyrir ógeðslegri upplifun hjá ónefndum apa… veit ekki hvort
ég eigi að vera að skrifa um það hérna… en það tengist allavega
skít og svolitlu sem maður á ekki að gera við sinn eiginn skit eða
bara skít yfir höfuð… Svo var drukkinn mikinn bjór og reynt að
versla mikið, en þar olli Köben mér vonbrigðum í þetta skiptið. Ég
verslaði ekki mikið, var líka stundum ekki að nenna því. Því þegar
maður kom inn í búðirnar í þykkri úlpu og síðum nærbuxum og með
húfu og vetllinga og allan pakkann þá varð manni alltof heitt og
það var svo mikið vesen að reyna að máta eitthvað, því það tók
svona tuttugu mínútur að klæða sig úr og í aftur… En annars þá bara
mjög vel heppnuð ferð… En að öðrum málum, ónefndar stelpur eru
eitthvað að leyna mann einhverju slúðri sem á að hafa gerst á meðan
ég var í burtu… ég veit ekki hvað er til í því, en ég fæ botn í
þetta mál von bráðar og mun þá deila því með ykkur lesendur góðir…
og það er eins gott að þetta sé eitthvað krassandi slúður… En ég
ætla að fara að læra smá, það er svo skemmtilegt verkefni sem bíður
manns… bless í bili, kveðja Súsanna
»
07.03.2006 11:05:47 / Barbara
Hér með auglýsi ég eftir henni Súsönnu, stelpan hefur ekki sést frá
því á þriðjudaginn í síðustu viku og enginn hefur heyrt í henni svo
dögum skiptir. Ef einhver getur upplýst okkur um ferðir hennar þá
endilega látið okkur vita í síma 900-lost. Hennar er sárt
saknað!!!!
»
04.03.2006 15:28:39 / Kleópatra
Langar bara að henda hér inn afmæliskveðju þar sem elsti
meðlimur Þema er 22 ára í dag! Til hamingju elsku Ella mín, hafðu
það sem allra best í dag og sjáumst svo bara í fjöri í kvöld!

»