Stórveldið Þema

Þema

23.07.2006 22:41:47 / Barbara

Biðin loks á enda

ég er semsagt búin að setja þessar blessaðu myndir inn.... tékkið endilega á þeim

» 4 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 13:31:01 / Barbara

Hvar, hvenær og afhverju???

Jæja gott fólk, vegna gígantískt magns áskorana þá hef ég ákveðið að henda hér inn einum pistli eða svo..... Hvað hefur drifið á mína daga síðan síðast?? Ja það er ansi margt og má þar helst nefna kostnaðar sama London ferð, tölvan mín ónýt, orðin blondína, mikið sukk og svo síðast en ekki síst þá náði ég öllum prófunum. Það hefur reyndar gerst ýmislegt fleira en ég nenni hreinlega ekki að skrifa kílómetra langan texta.

Londonferðin var mjög vel heppnuð fyrir kannski utan það að vegna mikillar peningaeyðslu þá hefur bankinn ákveðið að taka allar mínar eignir upp í visa skuldina, en þar sem ég á nú ekki mikið þá bara leiðinlegt fyrir hann. Ég græddi semsagt fullt af fötum í boði visa frænda sem hefur nú reynst manni ágætlega í gegnum tíðina.

London var bara fín, hefði viljað sjá meira af henni en vegna tímaskorts og búðarráps þá var það bara ekki hægt. Ég kynntist samt nýrri hlið af sjálfri mér, það er hliðin þar sem ég hugsa ekkert útí það hversu miklu ég er búin að eyða og hversu lítið not ég hef fyrir það sem ég eyddi í (þvílík sjálfsblekking að halda þvi fram að þetta sé ný hlið af mér). Þetta var ekki alveg það gáfulegasta sem ég gat gert í ljósi þess að tölvan mín eiðilagðist nokkrum dögum fyrir brottför sem þýðir það að ég þarf að splæsa í nýja áður en skólinn byrjar aftur..... Ég og bankinn er samt svo góðir félagar þannig að ég efast ekki um að þetta reddist...

Ég gæti alveg haldið endalaust áfram en ætla ekki að gera það svona ykkar vegna!!!

P.S.

Vil gefa shout out til Elsu og Dennis vegna nýju íbúðarinnar þeirra!!!

Vil einnig segja að þetta er rétt sem gárungar segja, blondes do have more fun!!!

Kleó gaman að sjá þig á laugardaginn!!!

Súsanna ertu á lífi!!!

Núna er ég bloggfrí í svona u.m.þ.b. mánuð!!!

Er að fara setja inn fullt af nýjum myndum!!!

Bless verið hress og ekkert stress.......... Barbara kveður að sinni og biður ykkur vel að lifa8)


» 11 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 10:03:09 / Kleópatra

Góðan daginn!

Jæja kanski kominn tími á blogg, veit ekki hvað eru liðnir margir mánurðir síðan ég bloggaði! Ástæðan er reyndar sú að ég er í vinnunni og mér leiðist svo óendanlega mikið þar sem ég hef nákvæmlega ekkert að gera þessa stundina :$ Mig vantar einhverja skemmtilegar síður eða eitthvað að gera á netinu, ef þið vitið um eitthvað sniðugt þá verð ég ykkur ævinlega þakklát! Ég þoli ekki að hafa ekkert að gera, málið er það að mér leiðist aldrei, ég finn mér alltaf eitthvað og það hefur einhvernvegin alltaf verið nóg að gera hjá mér, en þar sem ég er að vinna núna þá get ég víst ekkert bara farið eitthvað og fundið mér eitthvað að gera :S

Jæja hvað er svo annars að frétta... Ella náði prófinu sínu með glæsibrag og þvílíkt flotta einkunn sem þýðir bara það að við erum allar á leiðinni upp á annað ár, jiii við erum svo mikil gáfnaljós stelpur...

Svo eru bæði Erna og Vivian komnar heim sem er æðislegt, þær komu með þvílíkum surprisum og látum að annað eins hefur bara hreinlega ekki sést :haha: Þær voru einmitt báðar að útskrifast líka og segi ég nú bara til hamingju með það :haha:

Annars er nú svo sem ekkert eitthvað brjálað að frétta, þetta sumar gengur bara sinn vanagang og á sjálfsagt eftir að verða búið áður en maður veit af og áður en maður er búin að gera helminginn af því sem maður ætlaði sér að gera!

Annars segi ég bara reynið að njóta sumarsins og hafið það gott 8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 08:59:04 / Barbara

Hvað skal segja???

Nýjar myndir........ kosningadjamm og útskriftarboðið hennar Ástu Jónu....

Bless í bili og njótið veðursins!!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 13:34:46 / Barbara

Myndir

Halló halló....
Var að setja inn fleiri myndir.. þessar voru teknar á hokkí leik Ísland-Tyrkland og svo djamm eftir þann góða leik...

Þakka fyrir mig..

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 13:11:41 / Barbara

Heil og sæl

Hvað er uppi??
Bara að láta ykkur vita að ég var að setja inn nýjar myndir og mun líklegast koma til með að gera það svona af og til í sumar, svona til þess að gleðja aðdáendur mína og útlendinga vinina...
Ég get lofað ykkur því að það verður ekki mikið um skrif á þessari síðu í sumar, komum sterkar til leiks á næstu önn þegar við höfum ekkert að gera í tíma og sonna.....
bless í bili og njótið sumarsins..

Barbara over and out!!!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 14:15:51 / Barbara

Sumar og sól, ég fæ ekki nóg!!

Halló halló hvað er að frétta??? Ekki mikið að frétta af okkur, nema það að prófin eru búin og núna erum við að gera verkefni þengað til 15 mai (held það allavega). Já svaka stuð semsagt:$........
En ástæðan fyrir því að ég er að blogga er í fyrsta lagi sú að það hefur ekki komið færsla hér inn í langan tíma og  í öðru lagi ætlaði ég að hvetja alla til að mæta á úrslita hokkí leiknn í kvöld Ísland - Tyrkland, verðum öll að styðja við bakið á okkar mönnum sýna smá þjóðarstolt... Þetta verður rosalegur leikur í kvöld, það verður örugglega soldil harka sem er bara besta mál. Leikurinn byrjar kl. 20:00 uppí laugardal, og það verður geðveik stemning......

Ég vil að lokum óska öllum gleðilegt sumar og vonandi heldur veðrið áfram að vera gott eins og síðustu daga (það er reyndar alveg glatað veður í augnablikinu).... Vona að ég sjái sem flesta á djamminu í kvöld.......

Venlig hilsen ofurkonan Barbara!!!!!!!!!:D

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.04.2006 14:26:52 / Barbara

Merkisdagur í dag

Þessi helgi er merkileg helgi, Jesús var krossfestur og reis uppfrá dauðum og allur pakkinn en það sem margir eru að gleyma er það að hún Kleópatra (a.k.a. Möggulingurinn) fæddist á þessum degi fyrir 22 árum síðan :). Ég vil því óska þessari elsku innilega til hamingju með afmælið, því miður geturu ekki tekið gott afmælistjútt en við bætum það upp næstu helgi!!!!

Eigðu yndislegan dag í faðmi þíns heittelskaða og fjölskyldunnar.....

1000 kossar og knús frá mér...:haha::haha:

 

 



 

p.s. ef ég kynni að setja inn mynd af henni þá myndi ég gera það, en því miður er tæknikunnátta mín ekki uppá marga fiska....sorry!!


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.04.2006 11:22:08 / Kleópatra

Alltof erfitt að finna nafn á bloggið sitt !

Ég er búin að vera að kveljast hér heima hjá í alltof langan tíma, bara lesa eða vafra um internetið sem er afar vinsælt þegar maður á að vera að sökkva sér ofaní bækurnar. Ég ætlaði reyndar að gera mér dagamun í gær og dekra soldið við mig, ég skellti mér nefnilega í ljós 8) alveg magnað nema það eina sem ég fékk uppúr því er eldrauður rass og líkami :S Hvað er málið, ég er með glötuðustu húð í heimi, komst eiginlega að því að ég ætt bara að halda mig við brúnkukremin... þar sem náttúrulega er ég á litin eins og hundrað ára gamalt lík sem hefur legið á hafsbotni í of langan tíma... svaka næs...

Svo reyndar prófaði ég annað í þessum próflestri mínum en ég fór í jóga í fyrsta skiptið, veit ekki alveg hvort það sé fyrir mig. Það vissu allir hvað þeir voru að gera og fóru svo með eitthvað svaka bænardæmi í lok tímans og hummmuðu þvílíkt, ég bara næstum skellti uppúr þar sem ég bjóst einhvernvegin ekki við þessu, hélt þetta væri meira svona í bíómyndunum eitthvað 8| En þetta var allavega mjög spes og hver veit nema ég láti hafa mig útí þetta aftur þar sem maður hefur nú soldið gott af því að hreyfa sig pínkulítið...

Annars segi ég bara gangi öllum vel í próflestri eða hverju sem þið eruð að taka ykkur fyrir hendur!


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.04.2006 15:20:14 / Barbara

Próf, páskar og lestur!!!

Jæja þá eru tvö próf að baki og eitt eftir, þvílíkur léttir verð ég að segja og ég get ekki beðið eftir að þessari törn ljúki þrátt fyrir að verða ekki laus allra mála hvað skólann varðar.... en stressið verður allavega búið!!!
Páskafríið að byrja en að þessu sinni verður páskafríið ekki frí í eiginlegri mynd hjá okkur því það verður bara lestur, lestur og aðeins meiri lestur, en við fáum allavega að borða páskaegg þannig að það bætir stöðuna aðeins... Ég man þegar maður var lítill þá var alltaf falið páskaeggið og svo vaknaði maður eldsnemma á páskadegi fullur af spenningi og byrjaði að leita af egginu, já þetta voru gömlu góðu dagarnir þegar maður var laus af öllum áhyggjum nema þeim að finna páskaeggið á undan bræðru mínum...
Já þetta er eflaust leiðinlegasta færsla fyrr og síðar þannig að ykkar vegna ætla ég bara að láta þetta gott heita og snúa mér að bókunum og lesa þessar milljón blaðsíður sem þarf að kunna fyrir prófið......
Þangað til næst, bið bara að heilsa öllum nær og fjær!!!!!
Bless bless...

P.s. ákvað að breyta útlitinu svona í tilefni páskanna:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 20:49:23 / þema

Sumir eru tilbúnir að leggja leiðinlega hluti á sig til að láta drauma sína rætast...!!!

Ég var að búa til nýtt spakmæli, svona í tilefni þess að klukkan er að verða níu á laugardagskvöldi og ég sit ein heima hjá mér í náttfötum undir sæng að lesa nokkur hundruð blaðsíðna bók sem skrifuð var árið 1987… Já, svei mér þá, þessi einstaklega heillandi bók sem ber titilinn Samningaréttur, mun halda upp á tuttugu ára útgáfuafmæli á næsta ári… Vá, hvað ég hef ekkert skemmtilegt að segja. Ég held að kósý fötin mín séu orðin föst við líkamann og ég sjálf svo föst við sófann heima. En ég sé ekki fram á að þetta skemmtilega ástand muni breytast neitt fyrr en 21. apríl, sem þessa stundina virðist vera í órafjarlægð… Ég held að allur bærinn sem ég bý í sé á leiðinni á sveitaball í kvöld og þar á meðal húsbóndinn á heimilinu ( ekki Börkur, heldur hinn…) ég fór samt að pæla í því áðan hversu fyndið það væri ef hundur færi á ball, allir væru að dansa og svo væri svona bara einn laus hundur í þvögunni að skemmta sér… ég vildi samt ekki láta reyna á þessa hugdettu mina í kvöld, því að hundurinn minn er minn traustasti félagi í lestrarbaráttunni og hann fær sko ekki að fara á neitt ball í kvöld, heldur verður að þrauka að hanga inni í allt kvöld og horfa á mig lesa. Reyndar hljómar það ekkert svo illa í augnablikinu, ég væri frekar til í að horfa á einhvern annan lesa en að lesa sjálf… en nóg komið af bulli, ég vona bara að þið hin sem eruð ekki heima að lesa skemmtið ykkur vel um helgina og ég sendi lestrarkveðjur til hinna sem eru í sömu sporum og ég… megi guð vera með ykkur á þessum erfiðu tímum – kveðja Súsanna

» 4 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 13:27:09 / Barbara

Bara allt að gerast.....

Sú saga gengur fjöllum hærra að einhver hafi verið að svindla í prófinu í félagarétti og hafi þar af leiðandi verið rekinn úr prófinu... Þetta las ég hjá henni Elsu og ég verð að segja að þetta kemur mér bara ekki á óvart, enda ekkert smá mikið af efni sem maður þarf að innbyrða, svona skemmtilega flókið og ruglandi efni. Annars er ég að deyja mig langar svo að vita hver hafi verið að svindla, ég giska á að það hafi verið strákur því við stelpurnar þurfum ekki að svinda því við erum bara miklu klárari en þeir.......;).
Jæja það er best að fara gera sig reddí fyrir samningaréttinn, enda ekki minna flókið efni þar á ferð.....
Ég segi bara bless og vonandi er jafn mikið fjör hjá ykkur og það er hjá mér:$!!!!


» 9 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 21:27:30 / Barbara

Stress og aftur stress

Shit hvað mér er farið að líða illa yfir prófinu sem er á morgun, er búin að fá allavega tvö móðursýkisköst um það að ég sé að fara falla á öllum prófunum og lífið mitt sé bara búið. Þetta er bara mjög eðlilegt hjá mér svona rétt fyrir próf, hvernig væri lífið ef það væri ekkert stress? Mig langar mest til þess núna að leggjast uppí rúm og glápa á sjónvarpið, gefa bara skít í þetta skólavesen. En því miður þá virðist kæruleysan mín vant viðlátin þessa stundina og ég fæ mig ekki til þess að fara kúra uppí rúmi, hvað er að gerast ég skil þetta ekki, aldrei verið vandamál fyrir mig. Kannski er þetta aldurinn, maður á víst að verða vitrari með honum.
Jæja hf, ehf, sf, svf og fleiri félög kalla á mig og vilja endilega að ég haldi áfram að einbeita mér að þeim!!!!

P.s. vil senda shout out til Elsu pelsu sem er veik og að reyna hætta reykja... You can do it!!!!!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 18:41:12 / Barbara

Ég er enginn tölvulúði!!

Já við erum alveg arfa slakir bloggarar og það mun ekki breytast neitt á næstunni.
Síðasti skóladagurinn var í dag sem þýðir auðvita bara eitt, prófin eru rétt handan við hornið. Þetta verður rosaleg törn enda ekkert smá mikið lesefni, allavega meira en á síðustu önn. Já við verðum heldur betur að bretta uppá ermarnar og sökkva okkur ofaní bækurnar. Nóg um skólann!!!!!!

Ég er búin að taka þessa leiðinlegu skoðanakönnun út og ætla mér ekki að birta útkomuna en get sagt ykkur að þetta er mynd af Janis Joplin og ástæðan fyrir því að myndin kom ekki öll er sú að ég kann ekkert á þetta drasl og nenni ekki að reyna að læra hvernig á að setja mynd þarna þannig að hún passi. Hverjum datt eiginlega í hug að vera hafa allt þetta svona flókið, þetta er alls ekki ég og mín vöntun á tæknikunnáttu. Ég mun allavega aldrei viðurkenna það.......... Til hvers þarf maður eiginlega að kunna á meira en wordið og netið????? Já ég bara spyr????

Jæja ég held að ég sé búin að láta gammin geysa nóg í bili og kveð að sinni og vil óska öllum þeim sem eru á leiðinni í prófalestur góðsgengis og votta ykkur alla mína samúð.. ég vorkenni allavega mér sjálfri:cry:.......
Bless bless

» 7 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 16:20:46 / Barbara

Bjór, konur og dansar...

Halló halló... það var svaka stuð í vísindaferðinni, mikið drukkið og talað. Ég var samt án efa sú slakasta af okkur þrem og var farin heim um svona 2:30, Sús og Kleó djömmuðu fram eftir öllu og voru að skríða heim til sín í morgun....
Ég er búin að setja inn myndir, tók miklu fleiri en vegna ritskoðunar þá ákvað ég að vera ekkert að setja allar inn.... endilega skoðið þær..
Nenni ekki að segja mikið meira núna.... kem með skemmtilegri færslu seinna....
Bless í bili..

» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6